top of page
Stacks of Coins

Fjármál

Fjármálafræðslu, námskeið og ráðgjöf er að finna inni á heimasíðu okkar i www.ltv.is 

 

Hér á Draumarogdrekar.is eru upplýsingar um okkar vinnu í fjármálum og hægt er að skrá sig á námskeið og í ráðgjöf hér inni líka, það eru sömu námskeið og eru inni á ltv.is.

01.

Einkatími í fjármálum

Hægt er að koma í ráðgjöf á skrifstofu okkar að Suðurlandsbraut 22, 2 hæð (gengið inn að aftanverðu).

Fyrir þá sem óska þess að fá ráðgjöf í gegnum tölvu getum við einnig veitt ráðgjöf í gegnum vefforritið zoom, þá hefur þú samband í gegnum email eða síma og færð sendan hlekk.

Verð 18.000 krónur

02.

Úr skuldum í jafnvægi - netnámskeið

Úr skuldum í jafnvægi er námskeið fyrir fólk vill komast út úr fjármálavanda eða fyrir þá sem eru óöruggir í fjármálum. Margir fyllast kvíða og ótta og vilja helst flýja frá þessum óþægindum. Unnið er með tilfinningar, sjálfstraust, að læra að vinna með fjármál sín, læra að hafa yfirsýn yfir fjármál ásamt því að læra og skoða leiðir úr skuldavanda. Kennd eru fræðin Leiðin til velgengni, sem er sjö þrepa þroskastigi. Þá skoðum við hugsun og hegðun tengda fjármálum og hvaða áhrif það hefur á fjármálastöðuna.

 

Námskeiðið er 5 vikna netnámskeið, einu sinni í viku opnast nýtt viðfangsefni, fyrirlestrar (upptökur) og verkefni því tengdu. Þú hefur vikuna til að klára verkefnin og hefur aðgang að þeim á meðan á námskeiðinu stendur.

Uppbygging námskeiðs:

  1. Áhrif fjármálavanda á líf og líðan. Fræðsla að læra að lesa og greina fjármálavanda. Vanskilaskrá, skattur, meðlag, sektir, sakaksotnaður, innheimtufyrirtæki og fleira.

  2. Leiðin til velgengni – skoðum hugsun, hegðun og líðan og hvaða áhrif það hefur á fjármálastöðu.

  3. Leiðin til velgengni – skoðum hvað þarf að breytast í hugsun, hegðun og vinnuaðfeðum til að ná upp á næsta þroskaþrep.

  4. Jafnvægi í fjármálum náð, unnið með jafnvægi, sjálfstraust í fjármálum, læra að fá yfirsýn og skipulag og hvatning til að fara lengra.

  5. Skoðum hvað þarf að gera til að ná velgengni. Hugsun, hegðun og einkenni áhættu, ástríðu og velgengni eru skoðuð út frá þroskagöngunni Leiðin til velgengni. 
     

Þetta og fleira er útskýrt nánar þegar þú hefur skráð þig á námskeiðið. Vona að þú njótir ferðalagsins. - Kata

Verð aðeins 24.900 krónur.

03.

Einkaþjálfun í fjármálum

Nánari upplýsingar eru á vefsíðu www.ltv.is.

04.

Ráðgjafaskóli LTV

Nánari upplýsingar eru á vefsíðu www.ltv.is

bottom of page